80% af vinnunni fer fram í Outlook,
Hægt er að stofna verkefni,
viðskiptavini, tengiliði og skjöl beint
úr Outlook
WorkPoint uppfyllir skilyrði Þjóðskjalasafns Íslands ásamt því að vera þungamiðja í daglegum störfum notanda.
Fjölmargar opinberar stofnanir og sveitafélög nota WorkPoint til að halda utan um sín mál. Við bjóðum upp á tengingar við öll helstu verkfæri og tól. Þjóðskrá, Island.is, rafrænar undirritanir og fleira.
Hafðu samband og fáðu kynningu. Heyrðu reynslusögur annarra og sjáðu af hverju WorkPoint hefur orðið fyrir valinu hjá yfir 90 fyrirtækjum, stofnunum og sveitafélögum
Office 365 / On-Premise
Verkefnalausn
- verkefnastýring með mælikvörðum
Haltu utan um verkefnaferlið og stýringuna ásamt öll skjöl með WorkPoint. Við getum sett upp hefðbundið verkferli eða sniðið að ykkar þörfum. Með mælikvörðum, þrepaskiptingu og skráningum.
Með tengingum við bókhaldskerfi getum við sýnt fjárhagsstöðu, tímaskráningu og aðrar upplýsingar í WorkPoint.
Góðar yfirlitssíður með mælikvörðum. Sjálfvirkar tilkynningar og nútímalegt vinnuumhverfi gerir WorkPoint að svo miklu meira en bara skjalaskáp.
Office 365 / On-Premise
Samningar
- öflug lausn ofan á SharePoint
Með samningslausninni ná fyrirtæki betra utanumhaldi um gerð og eftirfylgni samninga. Frá því að samningur verður til þar til að samningstíma líður.
Með samningslínum er auðveldara að sjá og fletta upp ákvæðum samninga. Út frá einstaka samning, samningsaðila eða tegundum og ákvæðum. Sjálfvirkar tilkynningar og yfirlitssíður sjá til þess að ábyrgðaraðilar eru meðvitaðir um stöðu samninga.
Með Dokobit, Taktikal eða Signet er hægt að bæta við rafrænum undirritunum beint úr WorkPoint.
Office 365 / On-Premise
Gæðakerfi
- úttektir, áhættustýring, frávik, ábendingar og umbætur
Gæðakerfi sem vinnur sjálfstætt eða með Gæðahandbók Spektra. Hægt er að setja upp einstaka einingar eða alla heildarlausnina. Notaðu WorkPoint til að bæta verkferla, hlíta stöðlum og tryggja rétt verklag.
Office 365 / On-Premise
Fundir/Stjórnargátt
- öflug lausn ofan á SharePoint
Með WorkPoint geturðu haldið skilmerkilega utan um alla fundi og ákvarðanir. Hvort sem að notendur eru innri eða ytri aðilar.
Lausnin hentar fyrir stjórnir, ráð og nefndir í fyrirtækjum, stofnunum og sveitafélögum.
Hægt er að vísa úr málakerfi á fundi, birta fundargerðir á ytri vef og vera algjörlega pappírslaus. Öll fundargögn, ákvarðanir og upplýsingar í Microsoft umhverfinu þínu. Fullkomin rekjanleiki og útgáfustýring.